Bókaútgáfa Stebba

Skrifað þann 19/01/2011
Stefán Dan hefur gefið út 3 bækur. Nokkurskonar sjálfshjálpar og ráðgjafabækur sér hannaðar í sambandi við meðferðir.

Bækurnar heita "Einn dag í einu", "Dagurinn í dag" og "Svarta bókin" sem er meðferðarbók.
Verið er að þýða bækurnar á ensku en búið er að þýða fyrstu bókina og er hún í prentun.


 "Einn dag í einu"
Þessi bók er ætluð til að vera fólki til stuðnings til að byrja og enda daginn vel. Hún inniheldur fjórtán bænir sem leiða mann í gegnum vikuna, ein að morgni og ein að kvöldi hvers dags.  Bókin hefur fengið mjög góða dóma.

"Dagurinn í dag"
Þetta er sjálfshjálpar bók sem kemur fólki til að vinna betur í sljálfum sér yfir daginn. Hún eflir sjálfstraust og sjálfsvirðingu og hjálpar einstaklingum á að takast á við lífið.

"Svarta bókin"
Þetta er meðferðarbók sem að hjálpar einstaklingum að höndla mótlæti og koma á betra jafnvægi á hans líf og gera lífið betra.

Til baka

Vefumsjón